Copertina di Frjálsar hendur

Frjálsar hendur

RÚV
Ultimo episodio disponibile Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar Pronto per l’ascolto
0:00 1 h

1192 Episodi

Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar

7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og...

Ódysseifskviða 12 - Í landi dauðans

Hér er lýst för Ódysseifs og félaga til heljar. Hinir daufu draugar í dauðramannalandinu ganga hver af öðrum fyrir Ódysseif og hann spyr spámanninn Tíresías um hvernig framhaldið á heimferð hans til...

Norman Lewis 6 - Sovéskir stríðsfangar afhentir Stalín

Breski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var...

Árni Thorsteinsson

Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust...

Trippa-Sigga 3: Hestakona verður til

Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf...

Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 2

Framhald af síðasta þætti. Hér er áfram lesið úr viðtali Vilhjálms S. Vilhjálmssonar við Bjarna Brandsson sjómann sem nú segir m.a. frá því er hann kom úr siglingu haustið 1918 þegar spænska...

Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 1

.Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður á Alþýðublaðinu var kunnur fyrir fjölda merkilegra viðtala við alþýðufólk. Hér er gluggað í magnað samtal hans við Bjarna Brandsson sjómann sem segir m.a. frá því þegar hann...

Jósef á Svarfhóli 2

Annar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum...

Ódysseifskviða 11 - Í höll hinnar göldróttu Kirku

Hér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum...

Jósef á Svarfhóli 1

Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum...